KRISTJÁN HREINSSON

FÆDDUR 7. JANÚAR 1957kristjan

4. SÆTI

Kristján Hreinsson fæddist í Reykjavík 7. janúar 1957, ólst upp í Kópavogi, fór í Menntaskólann við Hamrahlíð og síðan í Háskólann í Bergen. Í dag býr hann ásamt tveimur sonum sínum, Pétri og Baldri, í Skerjafirðinum.

Kristján var um tíma ritari og síðar formaður borgarmálaráðs VG, sat sem varamaður í vesturbæjarráði, var lengi stjórnarmaður í hverfisfélagi Skerfirðinga, varamaður í stjórn Skáksambands Íslands, varaformaður Félags tónskálda og textahöfunda og varamaður í stjórn STEFs. Þá sat hann um tíma í stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks, í stjórn Skákdeildar KR, í fulltrúaráði STEFs og sat um árabil í stjórn Bandalags íslenskra listamanna.

Síðustu 20 árin hefur Kristján starfað sem skáld, afraksturinn er 30 bækur og nokkur hundruð söngtexta. En hann hefur einnig tekið virkan þátt í þjóðmálaumræðu, hefur verið ötull talsmaður félagshyggju, jafnréttis, kvenfrelsis, náttúruverndar og baráttu gegn spillingu. Hann hefur skrifað fjölda greina um gagnsæi, aukinn jöfnuð, nýjar leiðir í atvinnumálum og yfirleitt allt sem hægt er að telja þjóðinni til hagsbóta.

Kristján vill að stjórnmálamenn beri ábyrgð á orðum sínum og gjörðum og að bitlingapólitík og einkavinavæðing heyri sögunni til.

Í Reykjavík má gera svo mörgum sinnum betur en nú er gert. Ef forgangsröðun félagshyggjuafla nær fram að ganga þá má leysa margan vandann og finna góðum lausnum farveg.

Skjótfenginn gróði skammtímalausna er ekki það sem við þurfum. Við þurfum hugsjónafólk með hjartað á réttum stað.