LÍF MAGNEUDÓTTIR
2. SÆTI
Líf Magneudóttir er vefstjóri og þýðandi, fædd 13. ágúst 1974, býr á Bræðraborgarstíg 22.
Líf Magneudóttir lauk stúdentsprófi frá Nørre gymnasium í Kaupmannahöfn 1994 og B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands árið 2004. Hún starfar nú sem vefstjóri Sambands íslenskra sparisjóða og Sparisjóðsins og leggur stund á M.paed. nám í íslensku við Háskóla Íslands. Þá hefur hún starfað sem þýðandi á fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Líf hefur stutt Vinstri hreyfinguna grænt framboð frá stofnun og verið félagsmaður frá 2004.
Vinstri grænir ættu hvarvetna að beita sér fyrir hugarfarsbreytingu þar sem mannlífið, náttúran og nærumhverfið eru sett á oddinn. Allir hljóta að geta sameinast um framúrskarandi velferðarkerfi, mannsæmandi lífsskilyrði, réttlæti, jöfnuð og fjölbreytt menntakerfi þar sem hver og einn finnur sér leið við hæfi, til að þroskast og dafna, í síbreytilegu þjóðfélagi. Það er hagur allra að náunganum líði vel, að tækifæri séu sem jöfnust og að hvorki sé farið í manngreinarálit eftir kyni, kynverund, trúarbrögðum eða trúleysi, efnahag eða þjóðfélagsstöðu.
Þetta á ekki síður við um málefni sem snerta borgina og borgarbúa. Nú blasa við efnahagsþrengingar og óumflýjanlegur niðurskurður í flestum málaflokkum. Oftar en ekki bitnar sá niðurskurður á þeim sem síst skyldi og þeim sem enn hafa ekki fengið kosningarétt eða rödd í samfélaginu. Því leggur Líf áherslu á að hlúa þurfi að hagsmunum barna og ungmenna. Nauðsynlegt er að efla frekar leik- og grunnskóla og þá þjónustu sem snýr að börnum almennt. Auk þess verður að gæta þess að öll börn fái tækifæri, óháð efnahag, til að stunda viðeigandi tómstundir og sækja frístundaheimili. Tryggja verður að allar aðgerðir sem miða að nauðsynlegri hagræðingu bitni ekki á börnum.
Þá er einnig brýnt að sporna við langtíma atvinnuleysi og vinna gegn neikvæðum áhrifum þess á líðan fólks. Tryggja þarf að þeir sem eiga undir högg að sækja vegna efnahagsþrenginganna geti framfleytt sér og fjölskyldu sinni með mannsæmandi hætti. Það er kominn tími til að byggja upp fólk.
