JAKOBÍNA INGUNN
ÓLAFSDÓTTIR
FÆDD 16. JANÚAR 1956
1. – 3. SÆTI
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir er fædd 16. janúar 1956 og býr á Dyngjuvegi 5
í Reykjavík.
Jakobína býr með manni og tveimur sonum á unglingsaldri ásamt hundinum Lúkasi
en á auk þess fullorðna dóttur og son. Hún hóf starfsferil sinn í fiskvinnslu en er nú
að ljúka doktorsverkefni sem fer væntanlega í gegnum doktorsvörn síðar á árinu.
Vettvangur doktorsrannsóknarinnar er stjórnmálin og stjórnsýslan í Reykjavík
ásamt grunnskólum borgarinnar en henni er sérlega annt um að grunnskólinn
verði ekki skaðaður í kreppunni. Jakobína hefur lokið námi til Kand. Mag. gráðu í
stjórnsýslufræði auk MSc. gráðu í stjórnun og stefnumótun.
Mikilvæg málefni:
• Að fjármunir borgarinnar séu nýttir í þágu íbúanna.
• Að þekking, tjáningarfrelsi og velferð íbúanna ráði í stjórnsýslunni.
• Að spornað við því að eignum borgarbúa sé úthlutað aðilum sem vilja græða á velferðarþjónustu.
• Að hamla því að valdhafar græði á kreppunni.
• Að jafnréttissjónarmið séu samofin aðgerðum í stjórnsýslu.
• Að stuðla að uppbyggingu atvinnulífs, vernda grunn- og leikskólann og efla almenningssamgöngur.
• Að taka tillit til umhverfissjónarmiða og ganga ekki á rétt komandi kynslóða með sölu auðlinda.
Reynsla annarra landa hefur sýnt að þar sem AGS hefur farið um hafa lífsnauðsynjar,
s.s. vatn, orka og velferðarþjónusta, orðið að dýrum verslunarvarningi og
lífsgæðum hnignað. Berjumst gegn því. Það er stórt verkefni fram undan fyrir
íslenska þjóð að ná stjórnmálunum af valdaklíkum, vinna gegn foringjadýrkun og
koma á lýðræðisumbótum. Það er kappsmál að efla skilning á því að stjórnsýslan
er sameign okkar og hefur þann tilgang auka lífsgæði íbúanna og stuðla að
samfélagsumbótum.
Langtímamarkmið: Réttlæti, velferð og vönduð stjórnsýsla.
FÆDD 16. JANÚAR 1956
1. – 3. SÆTI
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir er fædd 16. janúar 1956 og býr á Dyngjuvegi 5
í Reykjavík.
Jakobína býr með manni og tveimur sonum á unglingsaldri ásamt hundinum Lúkasi en á auk þess fullorðna dóttur og son. Hún hóf starfsferil sinn í fiskvinnslu en er nú að ljúka doktorsverkefni sem fer væntanlega í gegnum doktorsvörn síðar á árinu. Vettvangur doktorsrannsóknarinnar er stjórnmálin og stjórnsýslan í Reykjavík ásamt grunnskólum borgarinnar en henni er sérlega annt um að grunnskólinn verði ekki skaðaður í kreppunni. Jakobína hefur lokið námi til Kand. Mag. gráðu í stjórnsýslufræði auk MSc. gráðu í stjórnun og stefnumótun.
Mikilvæg málefni:
- Að fjármunir borgarinnar séu nýttir í þágu íbúanna.
- Að þekking, tjáningarfrelsi og velferð íbúanna ráði í stjórnsýslunni.
- Að spornað við því að eignum borgarbúa sé úthlutað aðilum sem vilja græða á velferðarþjónustu.
- Að hamla því að valdhafar græði á kreppunni.
- Að jafnréttissjónarmið séu samofin aðgerðum í stjórnsýslu.
- Að stuðla að uppbyggingu atvinnulífs, vernda grunn- og leikskólann og efla almenningssamgöngur.
- Að taka tillit til umhverfissjónarmiða og ganga ekki á rétt komandi kynslóða með sölu auðlinda.
Reynsla annarra landa hefur sýnt að þar sem AGS hefur farið um hafa lífsnauðsynjar, s.s. vatn, orka og velferðarþjónusta, orðið að dýrum verslunarvarningi og lífsgæðum hnignað. Berjumst gegn því. Það er stórt verkefni fram undan fyrir íslenska þjóð að ná stjórnmálunum af valdaklíkum, vinna gegn foringjadýrkun og koma á lýðræðisumbótum. Það er kappsmál að efla skilning á því að stjórnsýslan er sameign okkar og hefur þann tilgang auka lífsgæði íbúanna og stuðla að samfélagsumbótum.
Langtímamarkmið: Réttlæti, velferð og vönduð stjórnsýsla.