MARGRÉT JÓNSDÓTTIR

FÆDD 18. JANÚAR 1957margret

1. – 6. SÆTI

VIRÐING…..HEIÐARLEIKI……UMHYGGJA…….

Margrét Jónsdóttir er fædd 1957. Hún er kennari og þroskaþjálfi og hefur mikla reynslu af kennslu í grunnskólum og menntaskólum. Hún hefur einnig unnið á sambýlum þar sem fatlaðir búa og þekkir þann málaflokk vel. Hún bjó í Svíþjóð í 10 ár við nám og vinnu þar. Hún á einn son, 14 ára gamlan gullmola, og hefur allaf verið virk í foreldrafélögum í grunn- og leikskólum fyrir son sinn.

Ég býð mig fram í borgarstjórnarkosningarnar fyrir Vinstri græna í Reykjavík í fyrsta skipti. Hef þó verið mjög lengi í flokknum, já alltaf ….. og er mjög ánægð með stefnuskrá flokksins og veru okkar í ríkisstjórninni ……loksins vinstri stjórn á Íslandi.

Ég tel fjölskylduna, heimilið og börnin okkar það allra mikilvægasta og þarf að hlúa mjög vel að. Eldri borgarar eru líka í miklu uppáhaldi hjá mér. Fólkið sem er búið að þræla fyrir okkur á skilið góð æviár.

Atvinnan er mjög mikilvæg í borginni okkar og þarf að finna vinnu fyrir þá sem eru atvinnulausir. Búsetumálin eru mjög mikilvæg og finnst mér allir eiga rétt á heimili. Löggæsla er frábær í Reykjavík og í mínu hverfi, Breiðholti, eru yndislegir lögreglumenn sem þekkja okkur.

Ég vil gera borgina mína Reykjavík…..að enn betri borg………þar sem öllum líður vel.