SNÆRÓS SINDRADÓTTIR

FÆDD 21. OKTÓBER 1991snaeros

4. – 5. SÆTI

Snærós Sindradóttir fæddist í Reykjavík 21. október 1991. Hún býr í Vesturbænum og er nemi á félagsfræðabraut Menntaskólans við Hamrahlíð. Snærós hefur verið ötul stuðningskona Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs frá því fyrir fermingu og gekk í flokkinn tólf ára gömul. Hún vakti athygli fyrir ljóðagerð sína strax á barnsaldri og útgefið efni eftir hana má finna víða.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Snærós ekki setið auðum höndum. Hún sat í ungmennaráði Vesturbæjar og Miðbæjar um nokkurt skeið og tók virkan þátt í Youth Exchange, samstarfsverkefni ungs fólks á Íslandi, í Finnlandi og Englandi. Snærós er fulltrúi Ungra vinstri grænna í stjórn Landssambands Æskulýðsfélaga og sat á vegum þess alþjóðlega ráðstefnu um loftslagsmál í tengslum við Cop15, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Hún sat í stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu síðasta starfsár og var kosin formaður stjórnarinnar í september síðastliðinn.

Snærós telur núverandi meirihluti borgarstjórnar hafa gert margháttuð mistök við stjórn Reykjavíkur. Hún vill leggja sitt af mörkum til að fegra borgina með áherslu á hin grænu gildi og styrkja velferðarkerfi hennar. Snærós leggur áherslu á félagshyggju, jöfnuð og femínískar lausnir ásamt umhverfismálum. Hún vill efla menningarstarf ungs fólks og hlúa að íþrótta- og æskulýðsmálum höfuðborgarinnar. Hún vill stórbæta aðstöðu útigangsfólks, einkum kvenna og einstaklinga undir átján ára aldri. Snærós telur deginum ljósara að fjárfrekar stórframkvæmdir verði að víkja fyrir öflugu velferðarkerfi. Leikskólar, grunnskólar og atvinnumál ungs fólks eru nauðsynlegar stoðir samfélagsins sem ekki má vega frekar að.