SÓLEY TÓMASDÓTTIR
1. SÆTI
Sóley Tómasdóttir er fædd 12. maí 1974, býr á Ljósvallagötu 12 í Reykjavík. Hún er gift Aart Schalk og á með honum Önnu, 10 ára og Tómas, 7 ára.
Sóley er ritari VG og borgarfulltrúi. Hún útskrifaðist úr MH 1994 og lauk BA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá HÍ 1998. Hún hefur unnið á sambýlum og frístundaheimilum, við rannsóknir og auglýsingagerð en frá hausti 2007 hefur hún verið í fullu starfi á vettvangi borgarstjórnar. Sóley hefur setið í flestum fagráðum borgarinnar þar sem hún hefur haldið uppi merkjum Vinstri grænna af hugrekki og stefnufestu. Sóley hefur verið virk í grasrótarstarfi frá unglingsaldri, m.a. í Suður-Afríkusamtökunum, Stígamótum og Femínistafélaginu, og lét að sér kveða í félagsstarfi stúdenta á háskólaárunum.
Sóley telur brýnt að á komandi kjörtímabili eigi skýr pólitísk stefnumörkun sér stað. Forgangsraða þarf fjármagni upp á nýtt, fullnýta útsvar og hagræða með félagsleg sjónarmið að leiðarljósi. Borgaryfirvöld verða að axla samfélagslega ábyrgð með því að standa vörð um starfsfólk borgarinnar, styrkja velferðarþjónustu, barnavernd, leik- og grunnskóla, íþrótta- og æskulýðsmál og halda uppi atvinnustigi með fjölbreyttum atvinnuátaksverkefnum. Efla þarf áhrif borgarbúa með áherslu á nærþjónustu, hverfalýðræði og gagnsæa stjórnsýslu. Gera þarf grænt átak í skipulagsmálum til að tryggja lífsgæði borgarbúa. Síðast en ekki síst þarf að standa vörð um sameiginlegar auðlindir, vatnið og orkuna, og taka fleiri og stærri skref í þágu umhverfisins með flokkun sorps á heimilunum, eflingu Strætó og bættum aðbúnaði fyrir hjólreiðafólk.
Hugmyndafræði Vinstri grænna hefur aldrei átt betur við en nú. Uppgjörinu við frjálshyggju, einkavæðingu, græðgi og glæfraskap er ekki lokið. Því verður fram haldið í kosningunum í vor, þegar þessum gildum verður vonandi skipt út fyrir félagslegt réttlæti, kvenfrelsi, umhverfisvernd og sjálfbæra atvinnuuppbyggingu.
