VÉSTEINN VALGARÐSSON

FÆDDUR 12. NÓVEMBER 1980vesteinn

2. – 3. SÆTI

Vésteinn Valgarðsson er Reykvíkingur, fæddur 12. nóvember 1980, sagnfræðingur að mennt og hefur starfað sem ráðgjafi/stuðningsfulltrúi á Kleppi frá árinu 2001.

Vésteinn hefur búið í miðbæ og Vesturbæ alla ævi, nú á Grundarstíg 5b með sambýliskonu sinni, G. Rósu Eyvindardóttur. Þau eiga dótturina Eldeyju Gígju (f. 24. janúar 2009) og annað barn í vændum í vor.

Vésteinn hefur verið virkur í grasrótarstjórnmálum árum saman og komið víða við, fór t.d. sem sjálfboðaliði til Palestínu sumarið 2003, var lengi í stjórn Félagsins Ísland-Palestína og ritstýrði blaðinu Frjáls Palestína. Hann var meðal stofnenda grasrótarbækistöðvarinnar Snarrót og í stjórn þar 2005-2006. Vésteinn hefur tekið mikinn þátt í félaginu Vantrú frá árinu 2004, bæði með skrifum og öðru starfi.

Hann hefur ritstýrt vefritinu Eggin.is frá 2005. Þá hefur hann verið ritari Rauðs vettvangs frá stofnun félagsins. Hefur verið trúnaðarmaður á Kleppi fyrir SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu frá 2006.

Vésteinn er sósíalisti og hefur alhliða ástríðu fyrir félagslegu réttlæti. Hann gekk til liðs við VG fyrir ári og hefur tekið virkan þátt í starfi flokksins síðan. Meðal sérstakra áherslumála Vésteins í sveitarstjórnarmálum eru sterk félagsþjónusta, gjaldfrjálsar almenningssamgöngur og að skipulag borgarinnar verði tekið úr höndum fasteignabraskara. Sérstök áhugamál önnur en félagslegt réttlæti: Kveðskapur og þjóðleg menning, garðyrkja og ferðalög.