ÞORLEIFUR GUNNLAUGSSON

FÆDDUR 27. MARS 1955thorleifur

1. SÆTI

Þorleifur Gunnlaugsson, f. 27. mars 1955, er dúklagningarmaður og býr á Hagamel 47 í Reykjavík. Hann er kvæntur Hjálmdísi Hafsteinsdóttur, og á tvo syni.

Þorleifur hefur m.a. setið í forsætisnefnd, borgarráði, stjórnkerfisnefnd, umhverfisog samgöngunefnd, íþrótta- og tómstundarráði og í stjórn Orkuveitunnar, Faxaflóahafna, hjúkrunarheimilanna Eir og Skógarbæjar, Gagnaveitu Reykjavíkur, Neytendasamtakanna og Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins. Hann er einnig varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Næsta kjörtímabil verður sérstaklega vandasamt fyrir stjórnendur Reykjavíkurborgar. Því er spáð að gengið haldist áfram mjög lágt og atvinnuleysi aukist til muna. Við þessar aðstæður er mikilvægt að þeir, sem taka við rekstri borgarinnar, forgangsraði með jöfnuð í huga og tryggi að enginn líði skort.

Við í VG höfum sýnt það á kjörtímabilinu að við erum fullfær um að taka þátt í stjórn borgarinnar. Af eljusemi og dugnaði hafa fjölmargir fulltrúar flokksins í nefndum og ráðum skilað miklum árangri til hagsbóta fyrir borgarbúa, þrátt fyrir að flokkurinn hafi verið í minnihluta.

Á erfiðum tímum, þegar tekjur borgarinnar fara minnkandi og útgjöld aukast, er engum betur treystandi en Vinstri hreyfingunni grænu framboði til að forgangsraða rétt. Við munum tryggja velferð allra borgarbúa með sérstakri áherslu á börn. Á sama tíma ætlum við beita okkur fyrir því að atvinnulífið komist aftur í gang.

Vinstri græn standa fyrir jafnrétti, velferð, lýðræði og heiðarleika.

Við viljum umhverfisvæna borg þar sem allir geta lifað með reisn. Við viljum halda fyrirtækjum, sem veita okkur nauðsynlega grunnþjónustu, í almannaeigu. Við viljum réttlátt samfélag.