ÞÓR STEINARSSON
4. – 6. SÆTI
Þór Steinarsson er 35 ára, fæddur og uppalinn á Akureyri en hefur verið búsettur í Reykjavík síðastliðin 12 ár. Hann á tvo syni, Ragnar Stein og Þorstein Elvar, og er í sambúð með Guðrúnu Baldvinu Sævarsdóttur. Þór er bókmenntafræðingur að mennt og hefur starfað við markaðs- og kynningarstörf. Hann leggur nú stund á meistaranám í stjórnsýslufræðum við H.Í. og lýkur því í vor.
Rödd Vinstri grænna er ómissandi í borgarmálunum. Þau sjónarmið, sem borgarfulltrúar okkar hafa haldið á lofti, eru afar mikilvæg. Það er verðugt verkefni að tala áfram fyrir umhverfis- og velferðaráherslum, öflugum lýðræðisumbótum og heilbrigðri stjórnsýslu.
Þór leggur höfuðáherslu á að forgangsraða í þágu jafnaðar og réttlætis. Leiðrétta þarf þau neikvæðu áhrif sem forgangsröðun núverandi meirihluta hefur haft á grunnþjónustu borgarinnar. Tryggja þarf stuðning samfélagsins við þá sem höllum fæti standa, m.a. með því að nýta að fullu útsvarsheimildir borgarinnar, fjölga atvinnuúrræðum ungs fólks, draga úr niðurskurði á leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum og gæta að því að starfskjör og vinnuálag borgarstarfsmanna sé í samræmi við aðra starfshópa.
Til að tryggja lífsgæði borgarbúa er mikilvægt að þeir geti haft áhrif bæði á sitt nánasta umhverfi og stærri ákvarðanir. Þessi hugmynd hefur ekki verið höfð í heiðri við stjórn borgarinnar. Nauðsynlegt er að ráðast í lýðræðisumbætur og auka valddreifingu í stjórnkerfinu á komandi kjörtímabili. Fjölga þarf tækifærum borgarbúa til þátttöku í stefnumótun og færa fleiri ákvarðanir inn í hverfin og nær fólkinu ásamt því að efla þjónustumiðstöðvar. Fjárlagagerð á að fara fram á kynjuðum forsendum og auka þarf samráð og samvinnu með minnihlutahópum.
Þór er stofnfélagi í Vinstri grænum og hefur tekið virkan þátt í starfi hreyfingarinnar. Fyrir síðustu alþingiskosningar var hann kosningastjóri í Norðausturkjördæmi. Áður var Þór virkur félagi í Alþýðubandalaginu á Akureyri.
