BIRNA MAGNÚSDÓTTIR
3. – 6. SÆTI
Birna Magnúsdóttir er fædd þann 5. mars 1965 og býr í Unufelli 46, 111 Reykjavík. Hún er gift Grétari Gunnarssyni og eiga þau fjögur börn og eitt barnabarn. Hún starfar sem vagnstjóri hjá Strætó bs.
Birna útskrifaðist sem leikskólakennari frá Fósturskóla Íslands árið 1992, en hefur starfað sem vagnstjóri hjá Strætisvögnum Reykjavíkur frá því í júní 1998. Hún syngur gospel og starfar sem þáttagerðarmaður á útvarpsstöðinni Mixfm 101,1.
Birna er tiltölulega nýkomin til liðs við Vinstri græna og hefur starfað með málefnahópi um almenningssamgöngur síðan í haust. Hún hefur ekki áður verið í öðrum stjórnmálflokki. Birna er varafulltrúi í fulltrúaráði starfsmanna Strætó bs.
Áherslumál Birnu eru almenningssamgöngur sem þarf að bæta og hlúa að, umhverfismál, jafnréttismál, húsnæðismálin og velferðin.
Í stað þess að sitja í þægilega horninu mínu, kvarta og bíða eftir að einhver komi og bjargi málunum langar mig til að fá að leggja mitt lóð á vogarskálarnar til að hér í Reykjavík blómstri íbúavæn byggð, með öllum þeim mannlegu gæðum sem í því felast.
