DAVÍÐ STEFÁNSSON
3. SÆTI
Davíð Stefánsson, bókmenntafræðingur, stundakennari og leikskólastarfsmaður, er fæddur 14. október 1973 og býr á Flókagötu 16. Hann er tveggja barna faðir í sambúð.
Davíð er bókmenntafræðingur sem hefur gefið út fjórar bækur og skrifað greinar um menningu í ýmsa miðla. Hann rekur textaþjónustuna Yddarann, kennir ritlist og bókmenntasögu í Listaháskólanum og Kvikmyndaskólanum, starfar hálfan daginn á leikskólanum Grænuborg, er stofnandi ljóð.is og situr í stjórn Rithöfundasambandsins.
Davíð hóf virkt flokksstarf innan VG í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar. Hann er varaþingmaður í Reykjavík-Norður og tók sæti á þingi um mánaðarskeið síðasta vetur, er formaður VG í Reykjavík, meðlimur í flokksráði og varamaður í menningarog ferðamálanefnd og barnaverndarnefnd Reykjavíkur.
Davíð er friðarsinni, félagshyggjumaður og femínisti sem lítur á jöfnuð og samhjálp sem einu heilbrigðu leiðina að sanngjörnu og virku samfélagi. Reykjavíkurborg hefur undanfarið verið rekin á markaðsgildum frekar en félagshyggju. Þessu þarf að snúa við hið snarasta, svo að sú tilhneiging til stéttskiptingar, sem borgarbúar hafa horft upp á undanfarið, nái ekki að skjóta varanlegum rótum.
Rætur Vinstri grænna liggja í hugsjón um félagshyggju, frið, kvenfrelsi og sjálfbært samfélag. Í anda þessara hugsjóna býður Davíð Stefánsson sig fram, en einnig með það sem markmið að stjórnsýsla borgarinnar verði yfirfarin og endurskoðuð. Leiðin út úr kreppunni hlýtur að felast í því að stjórnmálamenn sýni í verki að þeir geti starfað með heiðarleika og gagnsæi að leiðarljósi.
