EINAR GUNNARSSON

FÆDDUR 24. NÓVEMBER 1949einar

2. – 4. SÆTI

Einar Gunnarsson, fæddur 24. nóvember 1949, er byggingafræðingur og blikksmíðameistari, býr á Friggjarbrunni 26 í Reykjavík.

Einar lauk námi í byggingafræði frá tækniháskólanum í Horsens í Danmörku í júní 2006. Hann var formaður stjórnar Félags blikksmiða í 18 ár, formaður Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur um tíma og sat í nokkrum nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar fyrir hönd ABR. Síðastliðið sumar og fram á haust vann Einar hjá fyrirtæki í Noregi sem blikksmiður og þar áður hjá Verkfræðistofunni Mannvit. Hann er núna í atvinnuleit.

Heilbrigð og gagnsæ stjórnsýsla er lykilatriði í því að borginni sé vel stjórnað. Upplýsingar um hvað eina eiga að vera aðgengilegar. Mjög oft fara framkvæmdir á vegum borgarinnar fram úr kostnaðaráætlunum. Þessu þarf að breyta.

Hér eru þau þau atriði sem ég mun leggja áherslu á í rekstri, stjórnun og framkvæmdum Reykjavíkurborgar:

  • Að Reykjavíkurborg verði fjölskylduvænsta sveitarfélagið á Íslandi.
  • Að umönnunarstörf verði metin á annan hátt en gert er í dag varðandi kaup og kjör. Það er í raun óskiljanlegt að þeir sem handfjatla peninga hafi margföld laun fólks í ummönnunarstörfum.
  • Að almenningssamgöngur verði bættar.
  • Að Reykjavíkurborg sé í forystu um atvinnuuppbyggingu og laði að fyrirtæki sem virða umhverfið og hafa atvinnulýðræði að leiðarljósi.
  • Að þétta byggðina enn frekar en orðið er.
  • Að verklegar framkvæmdir fari ekki fram úr kostnaðaráætlun og að skipulag þeirra batni.
  • Að ráðdeild og sparnaður verði í heiðri hafður og borgarfulltrúar, embættismenn og þeir, sem koma að rekstri borgarinnar, sitji við sama borð og aðrir borgarbúar á öllum sviðum.
  • Að lýðræði ráði för í ákvörðunum í öllum málum og að valdið færist í auknum mæli til þeirra sem málið varðar.
  • Að Reykjavíkurborg stuðli að því að í borginni verði til tryggur húsnæðis leigumarkaður og að leigukostnaður verði viðráðanlegur fyrir alla.
  • Að tónlistarkennsla verði í boði fyrir öll grunnskólabörn í skólunum sjálfum.