ELÍN SIGURÐARDÓTTIR
3. – 4. SÆTI
Elín Sigurðardóttir verkefnastjóri er 30 ára, fædd 24. maí 1979 og er búsett í Háaleitishverfi, Álftamýri 40, 108 Reykjavík, ásamt eiginmanni sínum Haraldi Vigni Sveinbjörnssyni tónlistarmanni og dóttur þeirra Heklu Björt sem fædd er í júní 2007.
Elín er með meistaragráðu í félags- og kynjafræði frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Áður hafði hún útskrifast sem félagsfræðingur frá Háskóla Íslands. Elín starfar sem verkefnastjóri atvinnu- og menntamála hjá Klúbbnum Geysi sem er vinnustaður fyrir fólk með geðsjúkdóma. Elín hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð. Hún hefur átt sæti í stjórn Ungra vinstri grænna og var formaður Ungra vinstri grænna í Reykjavík 2006-2007. Auk þess hefur hún verið ritari Vinstri grænna í Reykjavík og varamaður í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Nú situr Elín í stjórn Ungra vinstri grænna auk þess sem hún er varamaður í velferðarráði Reykjavíkurborgar.
Elín leggur áherslu á velferð, kvenfrelsi, félagslegt réttlæti og náttúruvernd. Velferðarmál eru henni hugleikin enda eiga allir að geta lifað með reisn í Reykjavík. Auk þess eiga allir borgarbúar rétt á að nýta sér þá þjónustu, sem borgin býður upp á, svo sem leikskólavist fyrir börn sín óháð efnahag. Fátækt á ekki að líðast í okkar samfélagi. Elín telur mikilvægt að velferðar- og grunnþjónusta auk vatnsog orkuauðlinda eigi að vera í samfélagslegri eigu. Meginstoðir velferðarkerfisins þurfa að heyra beint undir ríki og sveitarfélög til að tryggja aðgengi allra að þeim.
