FRIÐRIK DAGUR ARNARSON

FÆDDUR 8. NÓVEMBER 1956fridrik

4. – 6. SÆTI

Friðrik Dagur Arnarson framhaldsskólakennari er fæddur 8. nóvember 1956, býr á Grenimel 1, kvæntur Sigyn Eiríksdóttur og eiga þau þrjá syni. Hann er með BApróf í sagnfræði og uppeldisfræði, kennsluréttindi, BS-próf í landafræði, hefur stundað nám í Hróarskeldu og Háskóla Íslands í ferðalandafræði. Hann var kennari við Skútustaðaskóla 1980-1990, við Kvennaskólann 1993-1995 og 1997-2010.

Friðrik hefur unnið að umhverfismálum í nær 30 ár og var landvörður í 20 ár. Hann hefur verið virkur í ungmennafélags- og íþróttahreyfingunni og tekið þátt í kóra- og leikstarfsemi. Á kjörtímabilinu var hann m.a. varaformaður velferðaráðs, situr í umhverfis- og samgönguráði, í menningar- og ferðamálaráði, í ýmsum starfshópum og varamaður í menntaráði. Er í verkefnastjórn Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma og hefur setið í Umhverfisfræðsluráði. Friðrik vill taka stærri og djarfari skref í umhverfismálum, gera dagsettar aðgerðaáætlanir og tryggja faglega vinnu þvert á svið og ráð.

  • Setja loftlagsmál í forgang, bæta loftgæði, eftirlit og vöktun.
  • Gefa náttúruvernd og umhverfisfræðslu aukið vægi.
  • Koma á landvörslu í borginni og styrkja útikennslu.
  • Efla strætókerfið og bæta skilyrði fyrir gangandi og hjólandi.
  • Gera átak í sorpflokkun og endurvinnslu.
  • Tryggja ár og vötn gegn mengun og útþenslu byggðar.
  • Stöðva eyðileggingu stranda vegna efnistöku í sjó.
  • Huga að gróður- og jarðvegsvernd og líffræðilegri fjölbreytni.
  • Efla faglegt starf skólana og bæta umhverfi þeirra.
  • Styrkja vinnuskóla og unglingavinnu.
  • Veita fríar skólamáltíðir.
  • Efla ferðaþjónustu í borginni og stofna Gestastofu Reykjavíkur.
  • Auka náttúruferðamennsku í borginni og nálægum náttúruperlum.
  • Hlúa að frumkvöðlastarfsemi og hönnun
  • Efla hverfalýðræði og starfsemi í hverfum með áherslu á nærþjónustu.