HEIMIR JANUSARSON

FÆDDUR 24. ÁGÚST 1962heimir

1. – 6. SÆTI

Heimir Björn Janusarson er fæddur á Akranesi 24 ágúst 1962. Hann lærði prentiðn og vann við þá grein í 12 ár. Eftir það lá leiðin í Garðyrkjuskóla ríkisins og fljótlega eftir útskrift þaðan réð hann sig til starfa hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma. Þar hefur hann starfað í 15 ár og gegnir nú stöðu forstöðumanns Gufunesgarðs. Heimir er giftur Sólveigu Ólafsdóttur sagnfræðingi og menningarstjórnunarfræðingi og á hann þrjú börn, þau Hallstein, Þórhildi og Ásgerði. Hafa þau búið á Hringbrautinni síðustu 23 ár.

Heimir var formaður Félags garðyrkjumanna í nokkur ár og sat í ýmsum nefndum og ráðum fyrir hönd þess félags innan Samiðnar og ASÍ. Síðustu ár hefur Heimir verið virkur innan VGR, verið í stjórn og gegnt þar stöðu gjaldkera, formanns, varaformanns og núna situr hann sem óbreyttur stjórnarmaður. Heimir hefur setið síðasta kjörtímabil í hverfisráði Vesturbæjar, verið varamaður í umhverfisog samgönguráði Reykjavíkurborgar og er fulltrúi í framkvæmda- og eignaráði Reykjavíkurborgar.

Heimir vill að sjónarmið íbúa í hverfum borgarinnar skili sér beint inn allar helstu ákvarðanir er varða þá, ekki síst þær sem lúta að skipulagsmálum og þjónustu við íbúana. Það þarf að auðvelda aðgengi íbúa að stjórnsýslunni og gera íbúana virkari og ábyrgari. Nýta þarf grænar lausnir hvort sem um er að ræða samgöngumál, sorpmál eða skipulagsmál. Grípa þarf til alvöru aðgerða gegn svifryki og loftmengun og stofna loftslagsráð sem framfylgir heilbrigðiskröfum. Almenningssamgöngur verði stórbættar og gerðar að raunhæfum valkosti.

Það þarf að blanda saman íbúðabyggð og atvinnuhúsnæði þannig að fleiri geti búið og starfað í sínu hverfi. Við allar breytingar á deiliskipulagi verður að leita eftir upplýstu samþykki íbúa þannig að ekki sé hægt að breyta skipulagi „í kyrrþey“.

Heimir hvetur alla til að standa vörð um það frábæra starf sem fer fram í skólum borgarinnar og tryggja velferð þeirra sem eru okkur hvað dýrmætust, barna okkar.