HERMANN VALSSON
3. SÆTI
Hermann Valsson kennari er fæddur 20. september 1965. Hann býr í Gvendargeisla 78 í Grafarholti. Hann er giftur Þóru Magneu Magnúsdóttur og eiga þau tvö börn, Ernu Hrund, f. 1989 og Magnús Val, f. 1991.
Hermann hefur starfað sem íþróttakennari frá árinu 1991. Hann kennir nú við Norðlingaskóla í Reykjavík. Auk starfa við kennslu hefur hann starfað sem íþróttaog æskulýðfulltrúi á Egilsstöðum og verið verkefnastjóri hjá ÍTR. Einnig hefur Hermann sinnt þjálfunarstörfum bæði í knattspyrnu og alpagreinum skíða. Þessum störfum hefur hann sinnt hjá KSÍ, Fram, ÍR, KR, Fylki og nú síðast hjá Haukum í Hafnarfirði. Hann hefur að langmestu leyti sinnt þjálfun barna og unglinga.
Hermann hefur verið félagi í VG frá 2000. Hann var beðinn um að taka fimmta sæti á lista VG í síðustu borgarstjórnakosningum. Síðan þá hefur hann verið virkur í starfi VG, varð formaður VGR haustið 2006 og gjaldkeri í stjórninni 2008 og situr enn í stjórn VGR. Á þessum tíma hafa verið tvennar alþingiskosningar. Starfið hefur verið krefjandi en um leið ákaflega gefandi og árangursríkt fyrir VG. Eftir síðustu alþingiskosningar hefur Hermann starfað sem varaborgarfulltrúi. Hann situr sem aðalmaður í leikskólaráði, menningar- og ferðaráði og hverfaráði Grafarholts. Hermann er fulltrúi VG í stjórn útivistarsvæða Orkuveitu Reykjavíkur og formaður skólanefndar Kvennaskólans Reykjavík sem fulltrúi Reykjavíkur.
Hermann leggur áherslu á að velferð í Reykjavík verði efld. Skólakerfið og öll þjónusta til barna og ungmenna, þ.m.t. þjónusta íþróttafélaganna gagnvart börnum og unglingum, verði varin og ekki verði frekari niðurskurður í þessum málaflokkum. Frekari uppbygging í borginni verði á forsendum umhverfisverndar. Hverfalýðræði verði eflt og þjónustumiðstöðvar fái vegameira hlutverk í borgarkerfinu.
