INGIMAR ODDSSON

FÆDDUR 8. OKTÓBER 1968ingimar

1. – 2. SÆTI

Ingimar Oddsson er fæddur 8. október 1968, býr á Lynghaga 17 í Reykjavík. Hann er persónulegur ráðgjafi og listamaður (multimedia artist) og hefur undanfarin ár starfað sem ráðgjafi barna og unglinga auk þess að sinna margs kyns verkefnum fyrir skóla og einstaklinga tengdum velferð barna og unglinga. Ingimar hefur einnig unnið við fiskvinnslu, sjómennsku, byggingarvinnu og sem meðferðarfulltrúi á sambýlum og við sjálfstæða búsetu fatlaðra. Árið 1999 hóf Ingimar rekstur fyrirtækis um þjónustu við fatlaða: IO-Vindlot ehf. sem sérhæfir sig í sértækri þjónustu þar sem unnið er eftir líkani altækrar gæðaþjónustu (TQS).

Ingimar hóf snemma þátttöku í stjórnmálum. Hann gekk í Alþýðubandalagið sextán ára og var þar virkur ungliði um skeið en tónlistin tók yfir og átti tíma hans og athygli lengi fram eftir.

Áherslur:

  • Ingimar leggur mikla áherslu á fjölbreytileika og fordómaleysi, lífið er jafnt fyrir alla til að njóta.
  • Velferð á að vera númer eitt.
  • Vinna þarf gegn ofbeldi á öllum sviðum, því ein tegund af ofbeldi réttlætir þá næstu.
  • Þjónusta á að koma í stað stjórnunar og lausnir eiga að koma frá þeim sem munu nýta þær.
  • Allar upplýsingar hins opinbera eiga að vera opinberar.
  • Það þarf að styðja við smáfyrirtæki, einstaklinga og nýjar hugmyndir með það í huga að minnka atvinnuleysi og auka tekjur. Í því skyni má nefna: hönnun, handverk og alls kyns smáiðnað, matvælaframleiðslu, hugbúnað og afþreyingu.
  • Við verðum að hugsa ástandið líka sem tækifæri. Hér er fullt af fólki, húsnæði, orku, vatni, landi og skapandi hugsun, lágt gengi krónunnar og viðskiptavinir á leið til landsins í tugþúsundatali.
  • Ingimar er opinn fyrir virkri samvinnu allra flokka í borginni. Þess vegna vill hann leggja á það ríka áherslu að stefnt verði að því að Vinstri grænir í Reykjavík nái minnst fjórum borgarfulltrúum í kosningunum og að næsta borgarstjórn verði velferðarstjórn.